Beint í efni
Hlaðvarp

Verk­fræði­varpið 40. þáttur - Samn­inga­tækni

Florence Kennedy ræðir við Hauk Inga Jónasson um ýmsar hliðar samningatækni.

Á í klakaböndum blátt og ísilagt.
Haukur Ingi Jónasson og Florence Kennedy

Hlusta

Florence Kennedy er framkvæmdastjóri Negotiate Ltd. Hún er dóttir Gavin Kennedy sem var prófessor við Heriot-Watts háskólann í Edinborg og einn virtasti fræðimaður heims á sviði samingatækni. Florence tók við kefli föður síns og kennir, þjálfar og skrifar bækur um samingatækni.  Hún hefur kennt í MPM-náminu frá upphafi þar sem fræðilegur bakgrunnur hennar auk víðtækrar alþjóðlegrar reynslu gerir vinnustofur hennar alveg einstakar.

Í viðtalinu ræðir Haukur Ingi við Florence um samingatækni, Gavin Kennedy, samingaviðræður sem verkefni, tengsl rökvísi og tilfinninga, bolabrögð og margt fleira.

Um Verkfræðivarpið
Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson, sem eru allir kennarar og fræðimenn við Verkfræðideild HR. Í þessari sjálfstæðu þáttaspyrpu innan HR hlaðvarpsins leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli.

Verkfræðivarpið er fastur liður í Fagumræðunni á vef VFÍ.