Beint í efni

Líf­eyr­is­mál

Hugsaðu til framtíðar og passaðu upp á að iðgjöldum sé skilað í lífeyrissjóð.

Á launaseðlinum eru upplýsingar um greiðslur í lífeyrissjóð. Þar sést hlutur vinnuveitanda annars vegar og launþega hins vegar. Einnig hvernig greiðslum er skipt í sameign og séreign.

Viðbótarlífeyrissparnaður er valfrjáls. Hér er um að ræða mjög hagstæðan sparnað, einskonar kaupauka sem allir ættu að nýta sér.

Þrenns konar hlutverk lífeyrissjóða

Greiða ellilífeyri til æviloka: Ellilífeyrir.

Greiða lífeyri vegna tekjumissis eða veikinda: Örorkulífeyrir.

Greiða maka þínum og börnum lífeyri ef þú fellur frá: Maka- og barnalífeyrir.

Almenni - Lífsverk lífeyrissjóður

Í desember 2025 var samþykkt með miklum meirihluta sameining Lífsverks lífeyrissjóðs og Almenna lífeyrissjóðsins. Sameinaður lífeyrissjóður tók til starfa 1. janúar 2026 og ber heitið Almenni - Lífsverk lífeyrissjóður. Nánari upplýsingar um sameininguna er hægt að nálgast á vef sjóðsins eða hjá ráðgjöfum hans.

Undirbúningur vegna samrunans stendur yfir en búast má við að sameiningarverkefni standi yfir á fyrri hluta árs 2026. Vegna þess hefur verið opnuð sérstök síða með fréttum og ýmsum upplýsingum um framvindu sameiningar og öðrum atriðum sem skipta máli fyrir sjóðfélaga.

Landssamtök lífeyrissjóða halda úti öflugum upplýsingavef um lífeyrismál.