Beint í efni

Starfs­heit­in

Starfsheiti verkfræðinga og tæknifræðinga eru lögvernduð og er VFÍ umsagnaraðili.

Félagið fylgist með gæðum námsins hér heima og í gegnum erlent samstarf fást traustar upplýsingar um nám erlendis.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur falið Verkfræðingafélaginu að vera umsagnaraðili um allar umsóknir sem berast um leyfi til að nota starfsheitin verkfræðingur og tæknifræðingur.

Menntamálanefnd VFÍ fer yfir umsóknir um félagsaðild og starfsheitisleyfi. Verkefni nefndarinnar eru skilgreind í 6. og 17. grein laga VFÍ.

Starfsheitið verkfræðingur - Reglur um mat á umsóknum

Upplýsingar eru á vef Stjórnartíðinda.

Starfsheitið tæknifræðingur - Reglur um mat á umsóknum

Upplýsingar eru á vef Stjórnartíðinda.

Starfsheitin verkfræðingur og tæknifræðingur eru gæðastimpill.

Menntamálanefnd VFÍ stendur vörð um menntun verkfræðinga og tæknifræðinga og fylgist með því námi sem í boði er hér á landi á því sviði. Nefndin er stjórn félagsins til ráðuneytis um menntamál. Verkfræðingafélagið er því í nánu samstarfi við háskólana og fylgist með þróun námsins og gæðum þess.