Íslenska hljóðvistarfélagið var stofnað árið 2006 og tilgangur félagsins er að tengja saman fólk sem vinnur við hljóðhönnun og hljóðvist á Íslandi. Markmiðið er að auka og breiða út þekkingu á því fagsviði. Félagið starfar innan VFÍ sem faghópur um hljóðhönnun.
Félagsmenn eru nú yfir 30 talsins og sérhver einstaklingur sem hefur áhuga á hljóðhönnun og hljóðvist getur orðið meðlimur í félaginu. Einnig geta félög, fyrirtæki og stofnanir sem áhuga hafa á að efla starfsemi félagsins orðið styrktarmeðlimir.
Íslensku hljóðvistarverðlaunin
ÍSHJÓÐ og Verkfræðingafélag Íslands veita Íslensku hljóðvistarverðlaunin. Eru þau veitt fyrir framúrskarandi hljóðhönnun.
Verðlaunin voru fyrst veitt árið 2022 fyrir góða hljóðvist á veitingastað eða kaffihúsi og var það Sigló hótel sem hlaut viðurkenninguna.
Árið 2025 voru verðlaun veitt fyrir framúrskarandi hljóðvist á leikskóla og var það leikskólinn Aldan á Hvolsvelli sem hreppti verðlaunin.
Stjórn Íshljóðs
Arnheiður Bjarnadóttir arnheidur@lota.is
Guðrún Jónsdóttir gudrun.jonsdottir@efla.is
Kristín Ómarsdóttir, formaður kom@brekkestrand.is
Ólafur Hafstein Pjetursson olafurhafstein@gmail.com
Myndin er að ofan er tekin við afhendingu Íslensku Hjóðvistarverðlaunanna í nóvember 2025.
Á myndinni eru frá vinstri: Helgi Gunnarsson formaður VFÍ, Páll V. Bjarnason arkitekt, Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri Rangárþings Eystra, Ólöf Pálsdóttir arkitekt, Kristín Ómarsdóttir formaður ÍSHLJÓÐS og Sólbjört S. Gestsdóttir leikskólastjóri.
