Félagsmenn KBFÍ (áður Stéttarfélag byggingafræðinga) hafa aðild að orlofs-, sjúkra- og starfsmenntunarsjóðum VFÍ svo framarlega að iðgjöld séu greidd. Einnig eiga þeir vísan aðgang að þjónustu félagsins á sviði kjaramála.
Félagsgjald í Kjaradeild Byggingafræðingafélagsins er kr. 45.000.-
(kr. 3.750.- á mánuði).
Skrifstofa VFÍ veitir félagsmönnum ráðgjöf og vinnur að gerð kjarasamninga fyrir hönd félagsins.
Athugið að þjónustusamningurinn felur ekki í sér aðild að Verkfræðingafélaginu.
Til að umsókn í Byggingafræðingafélag Íslands/Kjaradeild sé samþykkt af stjórn, þarf viðkomandi að hafa starfsheitið byggingafræðingur, sem er löggilt.
Hægt er að sækja um á vef Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.
Stjórn Kjaradeildar BFÍ
Harpa Ingólfsdóttir, formaður.
Ernir Brynjólfsson.
Eyjólfur Edvard Jónsson.
Magnús Jónasson.
Ólöf Þrándardóttir.
