Félögin í Frímann-orlofskerfinu hafa gert samninga við fjölda gististaða um land allt til að tryggja hagstæðustu mögulegu kjör.
Ferðaávísun er keypt á Orlofsvef VFÍ með rafrænum skilríkjum. Eftir innskráningu er valið í stikunni: Ferðaávísun og þar má skoða úrval og ganga frá kaupum.
VFÍ niðurgreiðir 20% af verði gistinga, að hámarki kr. 20.000 á ári. Punktafrádráttur fyrir fulla niðurgreiðslu eru 10 punktar.
Gistingu þarf að bóka sérstaklega og tryggja að hún sé laus á þeim tíma og stað sem óskað er eftir.
Ferðaávísunin rennur ekki út og auðvelt að fá endurgreiðslu.
Sértilboð í krafti fjöldans – Ferðaávísun
Á Orlofsvef VFÍ getur þú skoðað fjölbreytt sértilboð á gistingu víða um land – allt frá litlum gistiheimilum til hágæða hótela með morgunverði.
Ferðaávísunin er rafræn inneign sem þú velur sjálf(ur) upphæð fyrir, t.d. 5.000 eða 15.000 kr. Hana má nota hvar sem er hjá samstarfsaðilum og með öllum tilboðum sem standa til boða – án bindingar við einstök hótel eða dagsetningar.
Engin binding – aukið frelsi
Ávísunin nýtist á fleiri en einum gististað, og ef gistingin er dýrari greiðir þú einfaldlega mismuninn. Kvittun kemur í tölvupósti og inneignin er aðgengileg á þínu svæði á orlofsvefnum.
Ferðaávísun - Spurt og svarað
Ferðaávísun – Spurt og svarað
Af hverju ætti ég að kaupa ferðaávísun?
Vegna þess að þú færð betri kjör en á almennum markaði – stéttarfélögin hafa samið sérstaklega við hótel og gistiheimili.
Hvar sé ég tilboðin?
Skráðu þig inn á Orlofsvef VFÍ veldu „Ferðaávísun“ og skoðaðu úrvalið. Hvert gististaður getur verið með mörg mismunandi tilboð.
Hvað ef verð lækkar eftir að ég kaupi?
Ferðaávísunin gildir með öllum öðrum tilboðum. Þú nýtir hana alltaf sem inneign – og greiðir bara mismuninn ef verð lækkar.
Hvernig kaupi ég og næ í ávísunina?
Farðu á orlofsvefinn, veldu ferðaávísun, borgaðu með korti og fáðu kvittun í tölvupósti. Ávísunin geymist á þínu svæði á vefnum.
Hvernig nota ég ferðaávísunina?
Þú gefur upp kennitöluna þína við innritun. Gististaðurinn flettir upp inneigninni. Engin þörf er á prentuðu skjali.
Get ég fengið ávísunina endurgreidda?
Já, ef þú nýtir hana ekki færðu fullt verð og punkta endurgreidda. Ef aðeins hluti er notaður getur þú fengið restina til baka.
Rennur hún út?
Nei, ferðaávísunin rennur ekki út.
Skilmálar
Orlofssjóður VFÍ getur ekki ábyrgst að gistirými sé laust þegar félagsmaður hyggst nota ávísunina. Handhafi ávísunar þarf sjálfur að bóka herbergi og gangast undir bókunarskilmála hvers samstarfsaðila. Komi upp ágreiningur vegna veittrar þjónustu skal beina því erindi til viðkomandi samstarfsaðila. Seljandi ferðaávísunar ábyrgist ekki gæði þjónustu samstarfsaðilanna.
Ef svo háttar að umrætt hótel eða gistiheimili er fullt, eða ef ferðaáætlunin tekur breytingum þegar nær ferðinni dregur, er hægt að nota ávísunina hjá hvaða samstarfsaðila sem er, hvenær sem gistipláss er laust og með hvaða tilboði sem hótelin og gistiheimilin kunna að bjóða síðar. Þannig eru félagsmönnum tryggð bestu hugsanlegu kjör og útilokað að þeir fari á mis við betri tilboð, til dæmis þegar líður sumarið.