Beint í efni

Styrkt­ar­sjóð­ur - Opinber markaður

Er traustur bakhjarl í veikindum og veitir styrki til heilsueflingar.

Til þess að sækja um styrk skráir þú þig inn með rafrænum skilríkjum á Mínar síður.

Sjóðfélagar starfa hjá ríki, borg og öðrum sveitarfélögum. Einnig hjá hálfopinberum fyrirtækjum eins og OR, ON og Veitum.

Megin tilgangur sjóðsins er að greiða sjúkradagpeninga til sjóðfélaga sem lenda tímabundið út af launaskrá eða verða fyrir launaskerðingu vegna veikinda eða slysa. Auk þess eru greiddir styrkir vegna kostnaðar sem tengist heilsu, til dæmis líkamsræktarstyrkir, sjúkraþjálfun o.fl.
Í starfsreglum sjóðsins er að finna almennar úthlutunarreglur.

Öflugur sjóður með sérstöðu

Styrktarsjóður VFÍ hefur þá sérstöðu að iðgjaldið er að stærstum hluta séreign sjóðfélaga og safnast í svokallaðan „pott".

Athugið að sækja tímanlega um styrki til líkamsræktar. Umsóknir þurfa að berast fyrir 1. desember ef nýta á rétt til skattleysis á árinu.

Hvað er hægt að sækja um?

  • Styrkir vegna kostnaðar sem tengist heilsu, til dæmis líkamsræktarstyrkir, sjúkraþjálfun o.fl.
  • Sjúkradagpeningar til sjóðfélaga sem lenda tímabundið út af launaskrá eða verða fyrir launaskerðingu vegna veikinda eða slysa.
  • Styrkir vegna meðferða hjá sálfræðingi, hjúkrunarfræðingi, félagsráðgjafa, fjölskylduráðgjafa eða sambærilegum viðurkenndum meðferðaraðila.
  • Styrkir vegna fæðingar, tæknifrjóvgunar og ættleiðingar.
  • Styrkir vegna augnaðgerða, gleraugna og heyrnartækja
  • Örorkubætur og dánarbætur.

Styrktarsjóður VFÍ er traustur bakhjarl.

Að gefnu tilefni skal tekið fram að ekki eru veittir styrkir vegna búnaðar, s.s. líkamsræktartækja, reiðhjóla, skó- og útivistarfatnaðar. Hverja greiðslukvittun má aðeins nota einu sinni, hún þarf að fylgja umsókn og má vera allt að 12 mánaða. Kvittunin þarf að vera útgefin af söluaðila. Á kvittuninni þarf að koma fram nafn og kennitala bæði sjóðfélaga og seljanda. Einnig þarf að koma fram hvað er verið að greiða fyrir.

Afhverju vottorð?

Fjármunir Styrktarsjóðs VFÍ eru samtrygging félagsmanna og mikilvægt að fara vel með og vanda til verka. Ábyrgð VFÍ er mikil að hafa þessa sjóði í sinni vörslu.

Reglur vegna styrkja verða að vera skýrar og formsatriðin á hreinu, þó þau kunni stundum að virðast óþarfi.

Við vonum að sjóðfélagar sýni þörfinni á tiltölulega ströngum starfsreglum skilning.