Umsóknum og fylgigögnum er skilað rafrænt á Mínum síðum.
Í kjarasamningum VFÍ við ríki, Reykjavíkurborg og Launanefnd sveitarfélaga er ákvæði um greiðslur í Vísinda- og starfsmenntunarsjóð VFÍ. Markmið sjóðsins er að styrkja fjárhagslegan grundvöll endurmenntunar sjóðfélaga, skilyrði er að hún tengist beint menntun eða starfi viðkomandi. Athugið að tómstundanámskeið eru ekki styrkhæf.
Styrkir eru veittir til að sækja námskeið og ráðstefnur, kaup á bókum, tölvum o.s.frv. Ekki eru veittir styrkir vegna kaupa á snjallsíma, snjallúri, prentara, né heyrnartólum.
Athugið að skila verður afriti af reikningum. Þar verða að koma fram upplýsingar um söluaðila og nafn sjóðfélaga. Við erlendar greiðslur þarf einnig að skila greiðslustaðfestingu þar sem kemur fram upphæð í íslenskum krónum.
Verkfræðingafélagið er einn af stofnaðilum Endurmenntunar HÍ og njóta félagsmenn sérkjara á mörgum námskeiðum.