Beint í efni

Erlent samstarf

Mikilvæg tengsl og samstaða þvert á landamæri.

Verkfræðingafélagið tekur þátt norrænu og evrópsku samstarfi félaga verkfræðinga og tæknifræðinga.

ANE (Association of Nordic Engineers)

Verkfræðingafélag Íslands varð aðili að ANE í upphafi árs 2018. ANE er samstarfsvettvangur félaga verkfræðinga og tæknifræðinga á Íslandi, í Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og öðru af tveimur félögum í Noregi. Hlutverk ANE er að gæta hagsmuna norrænna verkfræðinga og tæknifræðinga bæði innan Norðurlandanna og í alþjóðlegu tilliti. Í dag eru um 500 þúsund félagsmenn í aðildarfélögum ANE.

Saman sköpum við og deilum þekkingu.

Association of Nordic Engineers.

Engineers Europe

Verkfræðingafélag Íslands er aðili að Evrópusamtökum félaga verkfræðinga og tæknifræðinga. Frá upphafi var nafn samtakanna skammstafað FEANI en 1. janúar 2023 breyttist nafnið í Engineers Europe. Aðildarlöndin eru 33 talsins og félagsmenn eru samtals 3,5 milljónir verkfræðinga og tæknifræðinga. Framkvæmdastjórn ESB viðurkennir Engineers Europe sem fulltrúa verkfræðinga- og tæknifræðingastéttanna í Evrópu.

Hvað er EUR ING titillinn?

EUR ING titillinn er gæðastimpill.

Engineers Europe.

NIL

NIL (Nordiska Ingenjörsorganisationers Lönemöte) er samstarfsvettvangur norrænu félaganna á sviði kjaramála. Á árlegum fundi fara fulltrúar félaganna yfir stöðuna og bera saman bækur sínar um það sem efst er á baugi hvað varðar vinnumarkað, kaup og kjör á verkfræðinga og tæknifræðinga á Norðurlöndunum.