Beint í efni

Fé­lags­gjöld

Lág félagsgjöld. - Öflugt faglegt starf og hagsmunagæsla.

Ekki er greitt hlutfall af launum heldur föst upphæð sem ákveðin er á aðalfundi. Iðgjöld í sjúkra- og styrktarsjóði og starfsmenntunarsjóði eru ekki innifalin í félagsgjöldum og eru þau greidd af vinnuveitanda.

Athugið að félagsgjöld í VFÍ eru lág miðað við það sem gengur og gerist á íslenskum vinnumarkaði. Félagsgjaldið er föst upphæð, 3.750.- krónur á mánuði en ekki prósenta af heildarlaunum. Algengt hlutfall af launum hjá öðrum stéttarfélögum er 0,7 allt upp í 1,5%.

Dæmi af launþega með 900 þúsund í heildarlaun á mánuði:

Félagsgjöld í Verkfræðingafélaginu: Kr. 3.750.-
Félagsgjöld í félagi þar sem hlutfallið er 0,95%: Kr. 8.550.-
Mismunur á mánuði: Kr. 4.800.- Mismunur á ári: Kr. 57.600.-

Félagsgjöld í Verkfræðingafélagi Íslands eru lág miðað við sambærileg félög á Íslandi.

Félagsgjöld eru ákveðin á aðalfundi ár hvert fyrir næsta almanaksár.
Félagsgjald ársins 2026 er kr. 45.000.- (kr. 3.750.- á mánuði).

Ungfélagar greiða ekki félagsgjöld

Heiðursfélagar, ungfélagar og félagar sem eru í fullu námi greiða ekki félagsgjöld. Félagar sem hafa náð 70 ára aldri eða eru hættir að vinna sökum aldurs greiða ekki félagsgjald.

Allir félagsmenn í VFÍ, hvort sem þeir greiða félagsgjald eða ekki, geta sótt rafrænt félagsskírteini sem veitir ýmiss konar afslætti

Nemendur sem eru í 100% starfi, til dæmis sumarvinnu, greiða fullt félagsgjald, enda ávinna þeir sér full réttindi í sjóðum. Nemendur sem eru í hlutastarfi með námi greiða ekki félagsgjald.

Athugið að VFÍ hefur ekki tök á að fylgjast með atvinnuþátttöku nemenda og verða þeir sem vilja fá fellt niður félagsgjaldið að láta vinnuveitanda vita og/eða hafa samband við skrifstofu VFÍ, skrifstofa@verktaekni.is

Félagar búsettir erlendis greiða ekki félagsgjald nema þeir hafi valið að nýta sér kosti gestaaðildar.