Samkvæmt lögum nr. 8 frá 11. mars 1996 hafa þeir einir rétt til að kalla sig verkfræðing eða tæknifræðing sem fengið hafa til þess leyfi ráðherra, enda hafi þeir lokið námi frá fullgildum háskóla.
VFÍ fylgist með gæðum námsins hér heima og í gegnum erlent samstarf fást traustar upplýsingar um nám erlendis.
Menntamálanefnd VFÍ setur reglur í samvinnu við Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið sem auglýsir hvaða nám telst leiða til fullnaðarprófs í verkfræði og tæknifræði.
Þú getur sótt um leyfi til að nota starfsheitið verkfræðingur eða tæknifræðingur um leið og þú sækir um inngöngu í Verkfræðingafélagið.
Að fenginni umsögn Menntamálanefndar sækir félagið fyrir þig um starfsheitið til ráðuneytisins.
Einnig er hægt að sækja um starfsheitið hjá Atvinnuvegaráðuneytinu..
Ráðuneytið innheimtir umsýslugjald (kr. 12.000 árið 2024) en VFÍ tekur ekki gjald fyrir sitt framlag.
Starfsheitið verkfræðingur - Reglur um mat á umsóknum
Upplýsingar eru á vef Stjórnartíðinda.
