Beint í efni

Lög og siða­reglur

Verkfræðingafélag Íslands var stofnað 12. apríl 1912.

Félagslögin voru samþykkt við sameiningu Verkfræðingafélags Íslands og Tæknifræðingafélags Íslands þann 1. desember 2016. Samþykktar voru breytingar á aukaaðalfundi 25. janúar 2018.

Lykilstef í siðareglum Verkfræðingafélags Íslands

Virðing og jafnrétti.

Fagleg ábyrgð og ráðvendni.

Samfélagsleg ábyrgð og sjálfbærni.

Um áratugaskeið hefur Verkfræðingafélagið haft siðareglur sem félagsmenn eiga að fara eftir.

Samkvæmt lögum félagsins er Siðanefnd starfandi hjá félaginu og er óháð stjórn félagsins. Hlutverk nefndarinnar er að fjalla um ágreining vegna ætlaðra brota á siðareglum og stuðla að því að þær séu virtar

Úr siðareglum VFÍ

Félagar VFÍ sýna fólki tillitssemi og virðingu, óháð kyni, lífskjörum, þjóðfélagsstöðu, menningu, þjóðerni og kynþætti.

Félagar VFÍ gera sér grein fyrir faglegri ábyrgð sinni og vinna í samræmi við viðurkenndar gæðakröfur.

Félagar VFÍ eru meðvitaðir um áhrif verka sinna á samfélag, umhverfi og náttúru.