Verkfræðingafélag Íslands var stofnað 1912. Verkfræðingum fjölgaði hægt framan af öldinni og voru félagsmenn í VFÍ innan við eitt hundrað árið 1940. Í dag eru félagsmenn VFÍ rúmlega 6000. Tæknifræðingafélag Íslands var stofnað 1960 og voru félagsmenn um 1300 þegar félagið sameinaðist VFÍ 1. janúar 2017.
Störf verkfræðinga og tæknifræðinga ná yfir stöðugt stærra svið og má segja að nám í þessum greinum veiti aðgang að nánast hvaða starfsvettvangi sem er. Fyrir rúmum eitt hundrað árum mátti fyrsti íslenski verkfræðingurinn, og þeir sem á eftir honum komu næstu áratugina, búa við takmarkaðan skilning á menntun sinni og getu.
Sigurður Thoroddsen (1830-1913) var fyrstur Íslendinga til að ljúka verkfræðinámi, 1862. Fyrst kvenna var Kristín Hallberg Jónsdóttir (1919-1997) sem lauk verkfræðiprófi 1942.
Verkfræðingafélag Íslands er sérstakt að því leyti að innan félagsins er öflugt faglegt starf samhliða kjaratengdum verkefnum. Félagið er því mikilvægur samstarfsvettvangur til þess að efla verkfræðilega og vísindalegu þekkingu. VFÍ stendur vörð um lögverndað starfsheiti og gæði verkfræðinámsins og vinnur að hagsmunum félagsmanna sinna á breiðum grundvelli til framtíðar.
Merkisáfangar í sögu Verkfræðingafélagsins
1862 Sigurður Thoroddsen lýkur verkfræðiprófi fyrstur Íslendinga.
1912 Verkfræðingafélag Íslands er stofnað.
1940 Kennsla hefst í verkfræði til fyrrahlutaprófs við Háskóla Íslands.
1942 Kristín Hallberg Jónsdóttir lýkur verkfræðiprófi, fyrst íslenskra kvenna.
1960 Tæknifræðingafélag Íslands er stofnað.
1972 Fyrsti hópurinn útskrifast með próf í tæknifræði frá Tækniskóla Íslands.
2011 Verkfræðingafélagið og Stéttarfélag verkfræðinga sameinast.
2017 Verkfræðingafélagið og Tæknifræðingafélagið sameinast.
VFÍ í 100 ár
Í tilefni af 100 ára afmæli Verkfræðingafélags Íslands var gefin út bókin VFÍ í 100 ár og er þar rakin saga félagsins og verkfræðinnar á Íslandi í máli og myndum. Bókin er til sölu á skrifstofu VFÍ.
Saga TFÍ - Gefin út á 50 ára afmæli félagsins
Tækni fleygir fram - Tæknifræði á Íslandi og saga Tæknifræðingafélags Íslands. Höf. Guðmundur Magnússon. Útg. Iðnsaga Íslendinga og Hið Íslenska bókmenntafélag. Bókin er til sölu á skrifstofu félagsins.
Trúin á tæknina - Svipmyndir úr sögu verkfræði og tækniframfara á Íslandi
Verkfræðingafélag Íslands ákvað að ráðast í gerð myndar um sögu verkfræði á Íslandi - samtíð og framtíð - í tilefni af 110 ára afmæli félagsins árið 2022. Trúin á tæknina fjallar um helstu vörður í verkfræði og tæknisögu Íslands, allt frá komu fyrstu verkfræðimenntaðra manna til landsins í upphafi 20. aldar til dagsins í dag.
Til umfjöllunar eru jafnfjölbreytt viðfangsefni og vegagerð, virkjanir, hafna- og vitagerð, byggingaframkvæmdir, hitaveita, íslenskur iðnaður, háhitaboranir, hugbúnaðargerð, rafeindatækni og margt fleira.
Þetta er mynd um nútímavæðingu Íslands með áherslu á tæknina sjálfa og verkfræðiþekkinguna sem Íslendingar hafa öðlast.
