Jólafundur Öldungadeildar VFÍ
Bókakynning: Síldarárin 1867 - 1969.
Jólafundur Öldungadeildar VFÍ verður miðvikudaginn 11. desember. - Bókakynning og jólalegar veitingar í mat og drykk.
Dagskrá:
Húsið opnar kl. 16:30 með kaffi og smákökum.
Klukkan 17 mun Páll Baldvin Baldvinsson kynna bók sína Síldarárin 1867 - 1869.
Um klukkan 18 verða síðan jólalegar veitingar í mat og drykk.
Makar eru velkomnir á fundinn. Aðgangseyrir: kr. 3.000.- pr. mann.
Til að auðvelda undirbúning vinsamlega skráið ykkur með því að senda tölvupóst á tilkynningar@verktaekni.is eða með því að hringja á skrifstofu VFÍ í síma: 535 9300.
Í kynningu frá bókaútgefanda segir meðal annars: Síldarárin 1867–1969 er einstakt stórvirki um síldarævintýrið í sögu þjóðarinnar. Á þeim hundrað árum sem hér er fjallað um umbreyttist Ísland úr örsnauðu þróunarlandi í tæknivætt velferðarríki. Síldin reyndist þar mikill örlagavaldur, og ósennilegt er að lífskjör væru hér svo góð sem raun ber vitni ef hennar hefði ekki notið við.