Teningurinn er viðurkenning Verkfræðingafélags Íslands fyrir framúrskarandi verkefni eða framkvæmd. Teningurinn er afhentur á Degi verkfræðinnar ár hvert og eru það verkefni fyrra árs sem koma til greina. Auglýst er eftir tilnefningum meðal félagsmanna VFÍ en öllum er frjálst að senda inn tilnefningu, eina eða fleiri.
Teningurinn er árleg viðurkenning fyrir framúrskarandi verkefni eða framkvæmd.
Heiðursfélagi er æðsta viðurkenning Verkfræðingafélags Íslands. Sigurður J. Thoroddsen var fyrsti heiðurfélaginn árið 1943. Síðan þá hafa 27 einstaklingar verið gerðir að heiðursfélaga.
Viðurkenningar fyrir vel unnin störf og framtak í þágu stéttarinnar og VFÍ.
Heiðursmerki VFÍ var fyrst veitt 1957. Alls hafa 127 einstaklingar hlotið þennan heiður. Ellefu einstaklingar hlutu gullmerki Tæknifræðingafélags Íslands.
Heiðursmerki VFÍ má veita í viðurkenningarskyni fyrir vel unnin störf á sviði verkfræði og tæknifræði eða vísinda, fyrir framtak til eflingar verkfræðinga- og tæknifræðingastéttinni í heild eða fyrir félagsstörf í þágu stéttarinnar.
