Réttindi í sjóðnum miðast við punktastöðu. Punktar eru reiknaðir út frá greiðslum í sjóðinn, einn punktur fæst fyrir hvern mánuð sem iðgjald er greitt. Til frádráttar koma úthlutanir, kaup á gjafabréfum og ferðaávísins, Veiðikorti og Útilegukorti.
Fyrir hvern mánuð sem félagi greiðir í Orlofssjóð VFÍ fær hann einn punkt eða samtals 12 punkta á ári. Mínuspunktar eru leyfðir að hámarki - 12 punktar.
Athugið að punktaaukning er lesin úr félagakerfi VFÍ einu sinni á ári, í marsmánuði. Orlofskerfið heldur utan um frádrátt punkta jafn óðum.
Fyrir síðustu vikuna í júní, allar vikur í júlí og fyrstu vikuna í ágúst eru dregnir frá 36 punktar. Fyrir aðrar vikur að sumri dragast frá 30 punktar.
Sama gildir um páska og vetrarfrís úthlutanir, það dragast frá 36 punktar.
Á öðrum tímum dragast frá þrír punktar fyrir hverja viku. Athugið varðandi orlofsdvöl utan sumartíma er einungis hægt að bóka eina viku fyrir áramót og aðra eftir áramót.
Tveir punktar eru dregnir frá við kaup á gjafabréfum Icelandair. (Fyrir hvert gjafabréf, heimilt er að kaupa fimm bréf á ári. (Þ.e. 5 bréf á hverjum 365 dögum).
Frá og með mars 2026 eru Útilegu- og Veiðikortið niðurgreidd og er frádráttur tveir punktar.
Punktaávinnsla er lesin úr félagakerfi VFÍ í marsmánuði ár hvert.
Nokkur atriði um reglur Orlofssjóðsins
Réttindi felast í punktum sem fást með skilum vinnuveitanda á iðgjaldi.
Bókanir og kaup á gjafabréfum fara fram á Orlofsvefnum.
Leiga er ekki endurgreidd.
Bannað er framleigja bústaðinn, til dæmis til ættingja eða vina.
Ef umgengni er ábótavant fær leigutaki merkingu í orlofskerfinu og getur ekki bókað á vefnum.
Orlofshúsin eru sameign sjóðfélaga, göngum um þau af alúð og sóma.
Ef einhverju er ábótavant varðandi umgengni eða viðskilnað fyrri gesta vinsamlegast látið skrifstofu VFÍ vita.