Beint í efni
Umsögn

Breyt­ingar á lögum um mann­virki

Mál nr. S-131/2026.

Grár stigi úr steypu.

Verkfræðingafélag Íslands hefur skilað umsögn um fyrirhugaðar breytingar á lögum um mannvirki sem snúa að einföldun byggingarreglugerðar og breyttu byggingareftirliti. Félagið fagnar markmiðum um einfaldara og skilvirkara regluverk, aukið svigrúm til nýsköpunar og bætt gæði mannvirkja.

VFÍ leggur áherslu á að einföldun regluverks og aukið faglegt svigrúm fari saman við skýra ábyrgð, viðeigandi hæfiskröfur og fullnægjandi eftirlit. Félagið bendir á að ekki sé sjálfgefið að fækkun tæknilegra krafna leiði til lægri byggingarkostnaðar eða húsnæðisverðs.

Í umsögninni er fjallað ítarlega um tillögur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) um breytt byggingareftirlit, meðal annars flutning verkefna til HMS, aukið hlutverk óháðra skoðunarstofa og fyrirhugaða niðurfellingu byggingarstjórahlutverksins.

VFÍ telur mikilvægt að áhrif breytinganna á öryggi og gæði mannvirkja verði metin vandlega og að tryggt verði að neytendur hafi raunhæf úrræði til að sækja bætur vegna byggingargalla. Félagið leggur jafnframt áherslu á áframhaldandi samráð við fagfélög enda liggur endanleg útfærsla margra þátta ekki fyrir.

Helstu ábendingar VFÍ

  1. Öryggi og gæði mannvirkja. Einföldun regluverks verði ekki á kostnað öryggis, heilnæmis eða gæða mannvirkja.
  2. Faglegt og óháð byggingareftirlit. Tryggt verði að skoðunarstofur búi yfir nauðsynlegri sérþekkingu og faglegu sjálfstæði og að eftirlit byggist á raunhæfu áhættumati.
  3. Hlutverk og ábyrgð HMS. Tryggt verði að stofnunin hafi nægan mannafla, sérþekkingu og fjármögnun til að sinna nýjum verkefnum. Jafnframt verði tryggð óháð leið til úrlausnar tæknilegra ágreiningsmála.
  4. Byggingarstjórahlutverk og neytendavernd. Ekki verði tekin endanleg afstaða til niðurfellingar byggingarstjórahlutverksins fyrr en skýrt liggur fyrir hvernig ábyrgð, samræming framkvæmda og tryggingavernd verði háttað.
  5. Byggingarkostnaður. Áhrif breytinganna á byggingarkostnað verði metin heildstætt, meðal annars með tilliti til eftirlitskostnaðar, byggingargalla og kostnaðar yfir líftíma mannvirkja.
  6. Samráð við fagfélög. Breytingar á hæfiskröfum, löggildingu og endurmenntun fagaðila verði unnar í nánu samráði við viðkomandi fagfélög.

Umsögn VFÍ um breytingar á lögum um mannvirki

Verkfræðingafélag Íslands vill taka þátt í stefnumótun, lagasetningu og ákvarðanatöku. Félagið er virkur umsagnaraðili um málefni er tengjast hagsmunum félagsmanna og samfélagsins í heild.

Á vef VFÍ eru birtar umsagnir frá árinu 2023. Eldri umsagnir má nálgast í Samráðsgátt stjórnvalda. Einnig má hafa samband við skrifstofu VFÍ.