VFÍ leggur áherslu á öfluga þekkingarmiðlun og umræðu þar sem tímaritið Verktækni - IJE gegnir stóru hlutverki
Staða Íslands á flekaskilum meginfleka býður upp á aðstæður sem finnast óvíða annars staðar og krefst sérstakrar aðgátar við mannvirkjagerð. Þéttbýli á Íslandi færist nú óðfluga inn á svæði þar sem berggrunnur er sundurskorinn af virkum misgengjum og sprungum. Sprungusveimur kenndur við Krísuvík liggur um austustu hluta höfuðborgarsvæðisins.
Í greininni er lýst reikniaðferð til þess að glíma við samtengd hljómrými sem hafa allt aðra hljómeiginleika heldur en samfelld rými.
Þétting byggðar og ákafari rigningarskúrir vegna hlýnunar jarðar auka álag á hefðbundin frárennsliskerfi sem safna ofanvatni í neðanjarðar lagnir. Ef ekkert er aðhafst þá getur tíðni flóða í þéttbýli aukist, með tilheyrandi eignatjóni og hættu fyrir umhverfi og heilsu fólks. Til lausnar þessa vanda er horft í æ ríkara mæli til blágrænna ofanvatnslausna sem vistvænnar og hagrænnar leiðar til þess að meðhöndla magn og gæði ofanvatns.
Rannsóknin er tilviksrannsókn sem framkvæmd var með eigindlegum rannsóknaraðferðum í formi viðtala við stjórnendur og almenna starfsmenn fyrirtækisins. Niðurstöður leiða í ljós að marktæk breyting hefur orðið á tveimur þáttum, starfsánægju og flæði en rannsóknin leiðir hins vegar ekki ljós að vörugæði hafi aukist eftir að fyrirtækið hóf innleiðingu straumlínustjórnunar.
Sú breyting hefur orðið á starfi íslenskra verkfræðistofa á undanförnum árum að flestar þeirra eru vottaðar samkvæmt ISO 9001 stjórnunarstaðlinum. Í þessari grein er fjallað um þessa umbreytingu úr þremur mismunandi sjónarhornum. Vottuð fyrirtæki þurfa að stunda stöðugt umbótastarf til að aðlaga og bæta gæðakerfi sín og þau þurfa að tryggja að stjórnendur, starfsmenn og viðskiptavinir upplifi árangur af þessu umbótastarfi.
Íslendingar njóta nú ljósleiðaratengingar við umheiminn um þrjá sæstrengi, Farice og Danice sem liggja til Evrópu og Greenland Connect sem liggur vestur um haf með viðkomu í Grænlandi. Hryggjarstykkið í íslenska stofnnetinu er ljósleiðarahringurinn sem liggur um flestar byggðir landsins og ljósvæðing aðgangsnetsins er langt komin hér á landi.
Rannsókn sýnir að um 84% grunnskólabarna í Reykjavík ferðast með virkum hætti, þ.e. ganga eða hjóla, í skólann. Í ljós kemur að hlutfall barna sem ferðast með virkum hætti til skóla í þéttbýliskjörnum á landsbyggðinni er talsvert lægra eða 66%.
Nýlöguð steypa inniheldur mikið óbundið vatn sem byrjar strax að hvarfast og bindast við sementið í steypublöndunni. Ef vatnið frýs snemma í hörðnunarferli steypunnar getur það valdið skemmdum á henni.
Til að meta tryggingarbætur eftir skjálftana voru matsmenn fengnir til að skoða skemmdir og áætla viðgerðarkostnað fyrir allar byggingar á svæðinu, þar sem tilkynnt var um tjón.
Gerð hefur verið samantekt á örveruástandi neysluvatns á Íslandi fyrir árin 2010-2012 bæði eftir stærð vatnsveitna og eftir heilbrigðiseftirlitssvæðum.
Aðferðir við burðarþolshönnun vega hafa til langs tíma byggt á reynslu. Þessar aðferðir eru einfaldar en takmarkaðar og niðurstöðurnar oft einhæfar og ógagnsæjar.
Hluti af eftirleiknum vegna hrunsins var nokkur fjöldi rannsókna og úttekta til að freista þess að skýra hvað fór úrskeiðis og afhverju.
Innleiðing ISO 9001 gæðastjórnunarkerfa hjá 21 fyrirtæki var könnuð með viðtölum við gæðastjóra fyrirtækjanna.
Markmið þessarar rannsóknar var að meta hvort „meira er betra“ gildi fyrir sambandið milli verkefnaálags og prófseinkunnar annars vegar og verkefnaálags og ánægju nemenda hins vegar.
Í þessari rannsókn var örveruástand hjá 444 minni vatnsveitum greint úr gagnagrunni um reglubundið eftirlit frá 7 heilbrigðiseftirlitssvæðum á Íslandi.