VFÍ leggur áherslu á öfluga þekkingarmiðlun og umræðu þar sem tímaritið Verktækni - IJE gegnir stóru hlutverki
Yfirborðslög sem innihalda lífræn efni og oxa metan hafa hlotið viðurkenningu á undanförnum árum sem hagkvæm og áhrifarík leið til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá urðunarstöðum.
Aðgangur að nægu og hreinu drykkjarvatni er ein af undirstöðum lýðheilsu og velferðar í hverju samfélagi. Mikilvægt er að tryggja að vatn njóti verndar bæði lagalega og í allri umgengni um vatnsauðlindina.
Engin fjárhagsleg greining hefur verið gerð á því hvort vottun skilar íslenskum fyrirtækjum fjárhagslegum ávinningi, þó gerðar hafi verið nokkrar almennar athuganir á útbreiðslu vottunar og viðhorfum fyrirtækja til vottunar.
Sérstök áhersla var lögð á að skoða áhrif gæðastjórnunar á verkkaupa og sér í lagi hvort marktækur munur væri á ánægju verkkaupa með framkvæmd verka hjá verktökum sem störfuðu eftir gæðastjórnunarkerfi miðað við verktaka sem ekki störfuðu eftir gæðastjórnunarkerfi.
Auknar kröfur til kólnunartalna og ákvörðun á hámarksgildi leiðnitaps bygginga í byggingarreglugerð hafa vakið talsverða umræðu um áhrif kuldabrúa í hefðbundnum steyptum vegg.
Rafmagnsframleiðsla Íslendinga kemur að stórum hluta frá vatnsorku. Nú eru liðin rúm 30 ár frá því að síðast var lagt mat á vatnsafl landsins og á þeim tíma hafa orðið tæknilegar framfarir sem kalla á endurnýjun þessa mats.
Straumfræðileg hönnun yfirfalls og iðuþróar fyrirhugaðrar Hvammsvirkjunar í Neðri Þjórsá er sannreynd og lokahönnuð með prófunum í straumfræðilíkani í kvarðanum 1:40.
Þann 29. maí 2008 varð jarðskjálfti af stærðinni 6,3 (Mw) í Ölfusi. Upptök skjálftans og tvö misgengi hans voru nálægt nokkrum smábæjum og þéttbýliskjörnum á svæðinu.
Miklu skiptir að ráðist sé í rétt verkefni á réttum forsendum og þau leiði til þeirrar niðurstöðu sem er vænst. Skortur er á að heildstætt mat sé gert á verkefnum sem lög leiða til, áður en lögin eru samþykkt.