Beint í efni

Trún­að­ar­menn

Trúnaðarmaðurinn er fulltrúi starfsmanna gagnvart vinnuveitanda og tengiliður við stéttarfélagið.

Stéttarfélagið er bakhjarl trúnaðarmannsins

Trúnaðarmaður er félagsmaður í stéttarfélagi sem valinn er af samstarfsmönnum sínum til þess að gæta hagsmuna þeirra gagnvart vinnuveitanda. Trúnaðarmaður stendur ekki einn og eru stjórn og starfsmenn stéttarfélags honum til aðstoðar við að leysa úr þeim erindum sem upp kunna að koma og heyra undir starfssvið stéttarfélagsins. 

Mikilvægasta hlutverk trúnaðarmannsins er að vera tengiliður milli félagsmanna á vinnustað og vinnuveitanda annars vegar og milli félagsmanna og stéttarfélags hins vegar.

Helstu hlutverk trúnaðarmannsins gætu verið þessi

  • Gætir þess að kjarasamningar og lög séu virt.
  • Talar máli starfsmanna og tekur við kvörtunum.
  • Er tengiliður milli starfsmanna og stéttarfélags.
  • Kynnir réttindi fyrir nýjum starfsmönnum.

Samkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna nr. 94/1986 V. kafla og lögum nr. 80/1938 - gr. 9-14 um stéttarfélög og vinnudeilur skal trúnaðarmaður gæta þess að vinnuveitandi haldi kjarasamning og réttur starfsmanna sé í hvívetna virtur, einkum um orlof, vinnuvernd, öryggi og hollustuhætti. Samkvæmt fyrrnefndum lögum ber trúnaðarmanni að rannsaka umkvartanir félagsmanna þegar í stað og komist hann að því að umkvartanir eða grunur hafi við rök að styðjast ber honum að krefja vinnuveitanda um lagfæringu.

Trúnaðarmaður er talsmaður starfsfólks og tengiliður við stéttarfélagið.