Beint í efni

Kjara­deild VFÍ

Fyrir launþega á almennum og opinberum markaði.

Maður í appelsínumgulum jakka og fjöll í baksýn.

Verkfræðingafélagið er samstarfsvettvangur í kjaramálum og mótandi afl í sókn að bættum kjörum. Félagið er lögformlegur samningsaðili um kaup og kjör verkfræðinga og tæknifræðinga.

VFÍ er deildaskipt félag. Launþegar tilheyra Kjaradeild félagsins en aðrir tilheyra Deild stjórnenda og sjálfstætt starfandi.

Stjórn Kjaradeildar VFÍ er kosin í aðdraganda aðalfundar VFÍ. Formaður Kjaradeildar á sæti í aðalstjórn félagsins.

Lögfræðiaðstoð

Félagsmenn fá ókeypis lögfræðiaðstoð vegna kjaramála og ágreiningsmála sem varða kjaralega hagsmuni. Auk þess fá félagsmenn 25% afslátt hjá lögfræðingum VFÍ vegna persónulegra mála.

Lögmenn Laugavegi 3 sinna lögfræðilegri þjónustu fyrir félagið og í málum er varða rétt félagsmanna. Beiðni um þjónustu stofunnar þarf að fara í gegnum skrifstofu VFÍ.

VFÍ hvetur félagsmenn sína til að vera vel upplýsta um réttindi og skyldur á vinnumarkaði.

Aðstoð við gerð ráðingarsamninga er einn mikilvægasti þátturinn í starfsemi VFÍ. Ef gerðir eru einstaklingsbundnir ráðningarsamningar er mikilvægt að vanda sérstaklega vel til þeirra.

Stjórn Kjaradeildar VFÍ

Bjarki Ómarsson, formaður.

Ásdís Sigurðardóttir

Eyþór Helgi Úlfarsson

Una Guðrún Gautadóttir

Kristjana Ósk Birgisdóttir, varameðstjórnandi

Ásbjörn Ólafsson, varameðstjórnandi