Beint í efni

Félag ráð­gjaf­ar­verk­fræð­inga

Kjarasamningurinn við Félag ráðgjafarverkfræðinga (FRV) er fyrir félagsmenn VFÍ sem starfa á verkfræðistofu.

Um langt árbil var samningurinn við Félag ráðgjafarverkfræðinga viðmiðunarsamningur á almennum markaði. Í dag ber að líta til samningsins við SA, samningurinn við FRV á við verkfræðistofurnar einvörðungu.

Ákvörðun launa

Kjarasamningurinn tryggir lágmarksréttindi. Laun og önnur starfskjör eru ákvörðuð í ráðningarsamningi sem gerður er milli vinnuveitanda og starfsmanns. Fjárhæð launa, samsetning þeirra o.þ.h. er samkvæmt ákvæðum ráðningarsamnings.

Í launaviðtali geta vinnuveitandi og starfsmaður meðal annars haft til hliðsjónar launabreytingar í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði og almenna launaþróun háskólamanna.

Á undanförnum árum meira borið á svokölluðum fastlaunasamningum á verkfræðistofunum. Við hvetjum félagsmenn að fara varlega í að gera slíka samninga og kynna sér vel hvað í þeim felst.

Greiðslur vinnuveitanda í sjóði

  • Sjúkrasjóður 1% af heildarlaunum.
  • Starfsendurhæfingarsjóður 0,10% af heildarlaunum. Athugið að greiðslu ber að skila til lífeyrissjóðs.

Orlofssjóður VFÍ og endurmenntun

Samkvæmt kjarasamningi við FRV er ekki greitt í orlofssjóð VFÍ. Dæmi eru um að starfsfólk verkfræðistofa greiði sjálft iðgjöld til sjóðsins.

Verkfræðistofurnar greiða ekki í Starfsmenntunarsjóð VFÍ og er kveðið á um rétt til endurmenntunar í kjarasamningnum. Félagsmaður á rétt á að verja allt að tíu vinnudögum á fullum dagvinnulaunum til endurmenntunar í samráði við vinnuveitanda. (Sjá nánar í grein 7.3. Framhaldsmenntun).

Launaviðtöl eru mikilvæg

Starfsmaður hefur samningsbundinn rétt á viðtali við yfirmann sinn einu sinni á ári um störf sín og hugsanlegar breytingar á starfskjörum. Óski starfsmaður eftir viðtali á að veita það innan tveggja mánaða og niðurstaða viðtalsins á að liggja fyrir innan mánaðar.

Í launaviðtali er ekki einungis verið að semja um laun heldur einnig um vinnuframlag og mikilvægi starfsmannsins og horft til þeirra þátta er snúa að starfsumgjörð viðkomandi.  

VFÍ heldur reglulega námskeið í launaviðtölum.

Vertu með á nótunum. Kynntu þér kjarasamninginn og skoðaðu launaseðilinn.

Eldri kjarasamningar við FRV