Beint í efni

Kjara­samn­ingar

VFÍ gerir kjarasamninga fyrir launþega sem tilheyra Kjaradeild félagsins.

Verkfræðingafélagið er samstarfsvettvangur í kjaramálum og mótandi afl um kaup og kjör verkfræðinga og tæknifræðinga.

VFÍ gerir kjarasamninga á bæði almennum og opinberum markaði.
Á opinberum markaði er samið við ríki og sveitarfélög. Þeim samningum tengjast jafnframt svokallaðir ríkisstofnanasamningar og fyrirtækjasamningar.

Fyrirtækjasamningar eru gerðir við hálfopinber fyrirtæki og fyrirtæki sem tengjast starfsemi opinberra aðila. Dæmi um slíkt fyrirtæki eru Faxaflóahafnir.

Viðmiðunarsamningur

Kjarasamningur VFÍ við Samtök atvinnulífsins (SA) er viðmiðunarsamningur á almennum markaði.

Starfsfólk verkfræðistofa heyrir undir samning VFÍ við Félag ráðgjafarverkfræðinga (FRV).

Nánar um kjarasamninga

Kjarasamningur

Kjarasamningur er samningur milli stéttarfélags og atvinnurekenda. Hann tryggir lágmarksréttindi eins og lágmarkslaun, vinnutíma, orlof og veikindarétt. Hann gildir fyrir alla félagsmenn sem heyra undir viðkomandi samning.

Ráðningarsamningur

Ráðningarsamningur er samningur milli þín og vinnuveitanda. Hann lýsir starfinu, launum og skilmálum – og má innihalda betri kjör en kjarasamningurinn. Ráðningarsamningur má hins vegar aldrei ganga gegn kjarasamningi.

Kjarasamningurinn setur lágmarkið – ráðningarsamningurinn getur bætt ofan á það.

Ráðgjöf

Sérfræðingar VFÍ veita ráðgjöf og þjónustu á sviði kjaramála: kjaramal@verktaekni.is

Vertu með á nótunum. Kynntu þér kjarasamninginn og skoðaðu launaseðilinn.