Nýr kjarasamningur var undiritaður við Reykjavíkurborg í júní 2025.
Greiðslur vinnuveitanda í sjóði
- Styrktarsjóður 0,75% af heildarlaunum.
- Orlofssjóður 0,25% í af heildarlaunum.
- Starfsþróunarsjóður 0,92% af heildarlaunum.
- Starfsendurhæfingarsjóður 0,10% af heildarlaunum. Athugið að greiðslu ber að skila til lífeyrissjóðs.
Launaviðtöl eru mikilvæg
Í launaviðtali er ekki einungis verið að semja um laun heldur einnig um vinnuframlag og mikilvægi starfsmannsins og horft til þeirra þátta er snúa að starfsumgjörð viðkomandi.
VFÍ heldur reglulega námskeið í launaviðtölum.
Öflugir sjóðir VFÍ veita styrki í veikindum, til heilsueflingar og endurmenntunar.