Tvískiptir samningar
Kjarasamningar við ríkið eru tvískiptir:
- Miðlægur kjarasamningur sem kveður almennt á um réttindi og skyldur, miðlægar hækkanir o.s.frv.
- Stofnanasamningur er samningur milli opinberrar stofnunar og stéttarfélags þar sem samið er um tiltekin atriði sem ekki eru ákveðin í almennum kjarasamningi. Þar getur verið samið um vinnutilhögun, viðbótarlaun eða hvernig fjármunum er ráðstafað innan stofnunarinnar.
Greiðslur vinnuveitanda í sjóði
- Styrktarsjóður 0,75% af heildarlaunum.
- Orlofssjóður 0,25% í af heildarlaunum.
- Vísinda- og starfsmenntunarsjóður 1,72% af dagvinnulaunum.
- Starfsendurhæfingarsjóður 0,10% af heildarlaunum. Athugið að greiðslu ber að skila til lífeyrissjóðs.
Launaviðtöl eru mikilvæg
Í launaviðtali er ekki einungis verið að semja um laun heldur einnig um vinnuframlag og mikilvægi starfsmannsins og horft til þeirra þátta er snúa að starfsumgjörð viðkomandi.
VFÍ heldur reglulega námskeið í launaviðtölum.
Öflugir sjóðir VFÍ veita styrki í veikindum, til heilsueflingar og endurmenntunar.