Beint í efni

Rík­i­s­tofn­ana­samn­ingar

Stofnanasamningar teljast hluti af kjarasamningi VFÍ við ríkið.

Stofnanasamningur er samningur milli stéttarfélags og tiltekinnar stofnunar og telst hluti af kjarasamingi. Í stofnanasamningi er m.a. að finna röðun starfa í launaflokka og viðbætur á laun vegna persónubundinna og tímabundinna þátta.

Með persónubundnum þáttum er átt við þætti sem gera menn hæfari í starfi, til dæmis viðbótarmenntun sem nýtist í starfi og starfsreynsla. Með tímabundnum þáttum er til dæmis átt við viðbótarábyrgð og/eða álag vegna sérstakra verkefna, hæfni, árangurs og/eða frammistöðu.

Hvað er stofnanasamningur?

  • Er samningur milli stofnunar og stéttarfélags.
  • Byggir á almennum kjarasamningi.
  • Tekur til atriða innan stofnunar, til dæmis vinnutíma og skipulags, ráðstöfun launafjár, starfsþróunar og fræðslu.
  • Gildir aðeins innan viðkomandi stofnunar.