Ákvörðun launa
Kjarasamningurinn tryggir lágmarksréttindi. Laun og önnur starfskjör eru ákvörðuð í ráðningarsamningi sem gerður er milli vinnuveitanda og starfsmanns. Fjárhæð launa, samsetning þeirra o.þ.h. er samkvæmt ákvæðum ráðningarsamnings.
Í launaviðtali geta vinnuveitandi og starfsmaður meðal annars haft til hliðsjónar launabreytingar í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði (sjá t.d. um kjarasamninga SA 2024-2028 ) og almenna launaþróun háskólamanna.
Greiðslur vinnuveitanda í sjóði
- Sjúkrasjóður 1% af heildarlaunum.
- Orlofssjóður 0,25% í af heildarlaunum.
- Starfsmenntunarsjóður 0,22% af heildarlaunum.
- Starfsendurhæfingarsjóður 0,10% af heildarlaunum. Athugið að greiðslu ber að skila til lífeyrissjóðs.
Launaviðtöl eru mikilvæg
Starfsmaður hefur samningsbundinn rétt á viðtali við yfirmann sinn einu sinni á ári um störf sín og hugsanlegar breytingar á starfskjörum. Óski starfsmaður eftir viðtali á að veita það innan tveggja mánaða og niðurstaða viðtalsins á að liggja fyrir innan mánaðar.
Í launaviðtali er ekki einungis verið að semja um laun heldur einnig um vinnuframlag og mikilvægi starfsmannsins og horft til þeirra þátta er snúa að starfsumgjörð viðkomandi.
VFÍ heldur reglulega námskeið í launaviðtölum.
Óhefðbundin stéttarfélög – sem aðeins bjóða sjúkratryggingar, grafa undan sjálfstæðri hagsmunabaráttu og samtakamætti launafólks.