Beint í efni

Almennur markaður - greiðslur

VFÍ gerir kjarasamning við tvo aðila á almennum markaði, FRV og SA.

Félagsgjald og greiðslur í sjóði

Samkvæmt ákvæðum kjarasamninga á almennum markaði gilda eftirfarandi ákvæði um greiðslu í kjarasjóði VFÍ.

  • Samtök atvinnulífsins
    Sjúkrasjóður: 1%
    Starfsmenntunarsjóður: 0,22% (var valkvætt il 1. júlí 2018)
    Orlofssjóður: 0,25%
  • Félag ráðgjafarverkfræðinga (FRV)
    Sjúkrasjóður: 1%
    Ekki er greitt í Orlofssjóð eða Starfsmenntunarsjóð. Athugið sérstök ákvæði í kjarasamningi um rétt til endurmenntunar.

Greiðslur í sjóði eru reiknaðar af heildarlaunum.

Frá og með 1. júlí 2018 var launagreiðendum skylt að greiða 0,22% í Starfsmenntunarsjóð VFÍ og 11,5% mótframlag í lífeyrissjóð. 

Félagsgjöld 2026

Verkfræðingafélag Íslands kr. 45.000.- (kr. 3.750 pr. mán.)
Stéttarfélag tölvunarfræðinga kr. 45.000.- (kr. 3.750 pr. mán.)
Stéttarfélag byggingarfræðinga kr. 47.400.- (kr. 3.950 pr. mán.)

Kjarasamningur VFÍ við Samtök atvinnulífsins (SA) er viðmiðunarsamningur á almennum markaði.