Beint í efni

Opinber markaður - greiðslur

Samningsaðilar VFÍ á opinberum og hálfopinberum markaði eru nokkrir og greiðslur í sjóði mismunandi.

Verkfræðingafélag Íslands gerir kjarasamninga við eftirtalda opinbera og hálfopinbera aðila:

  • Orkuveitu Reykjavíkur - OR.
  • RARIK.
  • Landsvirkjun.
  • Reykjavíkurborg - Borg.
  • Ríkið.
  • Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga - SNS.

Greiðslur í sjóði eru reiknaðar af heildarlaunum, nema hjá ríki, SNS og RARIK vegna Vísinda- og starfsmenntunarsjóða, þar er miðað við dagvinnulaun.

Greiðslum í Vísindasjóð var hætt með kjarasamningum 2020. Borgin greiðir 0,92% í Starfsmenntunar- og starfsþróunarsjóð, (var áður 0,60%).

Upplýsingar um greiðslur í sjóði hjá opinberum og hálfopinberum aðilum.

Félagsgjöld 2026

Verkfræðingafélag Íslands kr. 45.000.- (kr. 3.750 pr. mán.)
Stéttarfélag tölvunarfræðinga kr. 45.000.- (kr. 3.750 pr. mán.)
Stéttarfélag byggingarfræðinga kr. 47.400.- (kr. 3.950 pr. mán.)