Beint í efni

ST - Ríkið

Kjarasamningur ST fyrir tölvunarfræðinga sem starfa hjá hinu opinbera.

Tvískiptir samningar

Samningar við ríkið eru tvískiptir:

  • Miðlægur kjarasamningur sem kveður almennt á um réttindi og skyldur, miðlægar hækkanir o.s.frv.
  • Stofnanasamningur er samningur milli opinberrar stofnunar og stéttarfélags þar sem samið er um tiltekin atriði sem ekki eru ákveðin í almennum kjarasamningi. Þar getur verið samið um vinnutilhögun, viðbótarlaun eða hvernig fjármunum er ráðstafað innan stofnunarinnar.

Greiðslur vinnuveitanda í sjóði

  • Styrktarsjóður 0,75% af heildarlaunum.
  • Orlofssjóður 0,25% í af heildarlaunum.
  • Vísinda- og starfsmenntunarsjóður 1,72% af dagvinnulaunum.
  • Starfsendurhæfingarsjóður 0,10% af heildarlaunum. Athugið að greiðslu ber að skila til lífeyrissjóðs.

Launaviðtöl eru mikilvæg

Í launaviðtali er ekki einungis verið að semja um laun heldur einnig um vinnuframlag og mikilvægi starfsmannsins og horft til þeirra þátta er snúa að starfsumgjörð viðkomandi.  

Skrifstofa VFÍ skipulegur námskeið í launaviðtölum fyrir félagsmenn ST.

Öflugir sjóðir veita stuðning í veikindum og styrki til heilsueflingar og endurmenntunar.