Beint í efni

Stétt­ar­fé­lag tölv­un­ar­fræð­inga

Skrifstofa VFÍ veitir félagsmönnum í Stéttarfélagi tölvunarfræðinga þjónustu á sviði kjaramála.

Abstrakt hvítar línur á dökkum grunni

Skrifstofa VFÍ veitir félagsmönnum Séttarfélags tölvunarfræðinga (ST) þjónustu á sviði kjaramála. Þetta felur í sér aðild að orlofs-, sjúkra- og starfsmenntunarsjóðum VFÍ og vísan aðgang að þjónustu skrifstofunnar á sviði kjaramála. Skrifstofa VFÍ aðstoðar ST við gerð kjarasamninga.

Upplýsingar um sjóðina.

Félagsgjald Stéttarfélags tölvunarfræðinga er kr. 45.000.-
(kr. 3.750.- á mánuði). 

Aðalfundur ST 2026 - Stjórnarkjör

Aðalfundur Stéttarfélags tölvunarfræðinga var haldinn þriðjudaginn 12. maí sl.

Ný stjórn var kjörin og er Helena Melax ný í stjórn. Aðrir stjórnarmenn eru: Björn Heimir Björnsson formaður, Einar Indriðason og Karítas Sif Halldórsdóttir.

Ekki lágu fyrir tillögur um lagabreytingar.

Stéttarfélag tölvunarfræðinga hefur staðið vörð um hagsmuni tölvunarfræðinga síðan 1999

Hvaða gögn eiga að fylgja umsókn um aðild að ST?

Þau sem lokið hafa námi við íslenska háskóla þurfa einungis að skila inn vottorði um útskrift. Umsækjendur sem numið hafa við erlenda háskóla senda inn prófskírteini og lýsingu á námsleiðum ásamt einingafjölda.  

Félag tölvunarfræðinga er fagfélag tölvunarfræðinga.

Félagsmenn í ST eiga aðild að kjarasjóðum VFÍ

Kjarakönnun - rafrænt viðmót

Aðgangur að kjarakönnun tölvunarfræðinga er gegnum "Mínar síður" á vef VFÍ. Innskráning er með rafrænum skilríkjum og valið "Skráarsvæði" á stikunni. Þar eru ýmis skjöl, meðal annars kjarakönnunin.
Rafrænt viðmót Kjarakönnunar ST og FT.  (Ath. Notendanafn og lykilorð var sent félagsmönnum í tölvupósti).

Stjórn ST

Björn Heimir Björnsson, formaður.
Einar Indriðason.
Helena Melax.
Karítas Sif Halldórsdóttir.

Athugið að þjónustusamningurinn felur ekki í sér aðild að Verkfræðingafélaginu