Stéttarfélag tölvunarfræðinga er samstarfsvettvangur í kjaramálum og mótandi afl um kaup og kjör tölvunarfræðinga.
Kjarasamningur ST við Samtök atvinnulífsins (SA) er viðmiðunarsamningur á almennum markaði og ótímabundinn réttindasamningur. Með honum eru tryggð lágmarksréttindi til dæmis varðandi veikindi og orlof. Önnur atriði eru ákveðin í ráðningarsamningi.
Ráðgjöf
Samkvæmt þjónustusamningi ST við skrifstofu VFÍ fá félagsmenn ráðgjöf á sviði kjaramála: kjaramal@verktaekni.is
Nánar um kjarasamninga
Kjarasamningur
Kjarasamningur er samningur milli stéttarfélags og atvinnurekenda. Hann tryggir lágmarksréttindi eins og lágmarkslaun, vinnutíma, orlof og veikindarétt. Hann gildir fyrir alla félagsmenn sem heyra undir viðkomandi samning.
Ráðningarsamningur
Ráðningarsamningur er samningur milli þín og vinnuveitanda. Hann lýsir starfinu, launum og skilmálum – og má innihalda betri kjör en kjarasamningurinn. Ráðningarsamningur má hins vegar aldrei ganga gegn kjarasamningi.
Kjarasamningurinn setur lágmarkið – ráðningarsamningurinn getur bætt ofan á það.