
Arnar H. Halldórsson
Fæðingardagur: 1. apríl 1966
Vinnustaður: Strendingur verkfræðiþjónusta.
Starf og menntun: Verkfræðingur og verkefnastjóri.
Diplom Ingenieur frá Universität Stuttgart.
Netfang: arnarhh@gmail.com
Reynsla af félagsstörfum og önnur starfsreynsla
Í mínum störfum sem verkfræðingur hef ég komið víða við eins og gengur. Ég hef m.a. starfað sem burðarþolshönnuður, verkefnastjóri, staðarstjóri hjá verktaka, sem byggingarfulltrúi, eftirlitsmaður, tjónamatsmaður og ráðgjafi.
Ég hef setið í samninganefnd VFÍ við FRV í nokkur ár. Þar hefur ýmislegt breyst undanfarið og er tillaga á aðalfundi um Kjaradeilusjóð sprottin úr okkar starfi.
Nýlega hef ég svo tekið þátt í pólítísku starfi í mínu sveitarfélagi. Það er frumraun á því sviði og tengist ég því helst sem áhugamaður um skipulagsmál og ákvarðanir um verklegar framkvæmdir sveitarfélagsins.
Helstu áherslur
Eitt af hlutverkum félags eins og okkar er að láta í sér heyra með gagnrýnum hætti ef verið er að taka ákvarðanir sem þyrftu að vera teknar á verkfræðilega faglegum grunni en eru ekki teknar þannig. Allt of oft höfum við horft á hlutina gerast án þess að bregðast við.
VFÍ hefur, að mínu mati, ekki haft sig nægjanlega mikið í frammi opinberlega á þessum nótum á undanförnum árum. Tilefnin hafa þó verið mörg. Þar er ég t.d. að tala um þegar breytingar hafa verið gerðar á starfsumhverfi okkar, breytingar á regluverki, ákvarðanir um stórar framkvæmdir og skipanir í störf og nefndir. VFÍ á vissulega ekki að taka þátt í dægurþrasi heldur, þegar ástæða er til, leggja fram tillögu, gagnrýni eða athugasemd sem vigt er í. Þetta þarf að gera faglega og málefnalega þannig að hlustað verði og mark tekið á.
Mig langar að vera þátttakandi í þessu og býð mig því fram til setu í stjórn VFÍ.
