
Erlendur Örn Fjeldsted
Fæðingardagur: 30. október 1965.
Vinnustaður: Mannverk ehf.
Starf og menntun: Verkefnastjóri, byggingatæknifræðingur B.Sc. og húsasmiður.
Netfang: erlendurfjeldsted@gmail.com
Reynsla af félagsstörfum
Ég hef setið í stjórn VFÍ síðan 2022.
Ég sat í Stjórn Kjaradeildar VFÍ frá 2017-2022.
Var í samninganefnd VFÍ við endurnýjun kjarasamnings við SA árið 2021.
Var fulltrúi í samninganefnd TFÍ/VFÍ frá 2014-2018.
Sat í Skipulags- og byggingarnefnd Mosfellsbæjar frá 2008-2014 og sat jafnframt í Jafnréttisnefnd bæjarfélagsins í fjögur ár.
Hef tekið virkan þátt í starfi Kiwanishreyfingarinnar frá 1999. Er umdæmisritari umdæmisins Ísland Færeyjar, var svæðistjóri Sögusvæðis, Var svæðisstjóri á Grettissvæði, forseti Kiwanisklúbbsins Mosfells í Mosfellsbæ í þrígang auk þess að sinna ýmsum trúnaðarstörfum fyrir klúbbinn.
Sat í stjórn meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá Aftureldingu 2009-2011 og formaður 2010-2011. Sat einnig í stjórn skátafélagsins Mosverja í Mosfellsbæ árin 2004-2012 og foreldrafélögum leik- og grunnskóla barnanna minna.
Helstu áherslur
Ég vil hag verkfræðinga og tæknifræðinga sem mestan. Ég legg áherslu á að halda uppi mikilvægi starfsgreinarinnar og að kjör okkar haldi vel í sambærilegar starfsstéttir sem við berum okkur saman við.
Ég tel mikilvægt að Sjúkrasjóður VFÍ sé raunverulegur stuðningur við félagsmenn og trygg aðstoð við þá sem þurfa aðstoð eftir slys eða veikindi.
Ég tel einnig mjög mikilvægt að Stjórn VFÍ sé í nánum tengslum við félagsmenn og leiti m.a. beint til þeirra varðandi mikilvæg málefni líkt og gert er með kjarakönnun og í fleiri málum.
Ég tel einnig mikilvægt að félagið bjóði félagsmönnum upp á endurmentunarnámskeið og námskeið til þróunar í starfi eins og hefur verið gert.
Í starfi mínu fyrir stjórn VFÍ, stjórn Kjaradeildar og samninganefnd VFÍ/TFÍ á síðustu árum hef ég aflað mér reynslu og fengið góða innsýn í skipulag og störf félagsins.
Ég hef mikinn áhuga á að starfa áfram í Stjórn VFÍ og óska eftir stuðningi ykkar til þess að vinna áfram að hag félagsmanna VFÍ.
