Fagdeildir félagsins fjalla um málefni hinna ýmsu verkfræðigreina.
Landshlutadeildir eru á Akureyri, Austurlandi og í Vestmannaeyjum.
Faghópar og Kvennanefnd
Innan félagsins starfa einnig faghópar sem starfa á svipaðan hátt og deildirnar og hafa það meginmarkmið að efla faglega þekkingu á viðkomandi sviði. Munur á deildum og faghópum er fyrst og fremst sá að formið er frjálsara, þannig geta einstaklingar utan félags verið í faghópum sem starfa innan vébanda VFÍ. Dæmi um þetta er Rafbílahópur VFÍ.
Innan VFÍ starfar Kvennanefnd og er markmið hennar meðal annars að styrkja tengslanet kvenna og stöðu þeirra innan stéttarinnar.
Íslenska hljóðvistarfélagið - ÍSHLJÓÐ
Íslenska hljóðvistarfélagið var stofnað sem faghópur innan VFÍ þann 11. september árið 2006. Nafninu var síðar breytt í Íslenska hjóðvistarfélagið - ÍSHLJÓÐ.
ÍSHLJÓÐ og VFÍ vinna náið saman og veita árlega Íslensku hljóðvistarverðlaunin.
Staða fagdeilda - breyttir tímar
Fagdeildir hafa um langt skeið verið hluti af faglegu og félagslegu starfi Verkfræðingafélag Íslands. Áður en samfélagsmiðlar og stafrænir samskiptamiðlar urðu ráðandi gegndu þær mikilvægu hlutverki sem vettvangur fyrir faglegt samtal, miðlun þekkingar og tengslamyndun.
Í dag eru að forminu til fjórar fagdeildir innan félagsins: Byggingarverkfræðingadeild, Efnaverkfræðingadeild, Rafmagnsverkfræðingadeild og Vélaverkfræðingadeild. Síðastliðin ár hefur starfsemi deildanna verið með minna móti, meðal annars þar sem skipulag funda og viðburða er í auknum mæli á vegum skrifstofu félagsins og samskiptahættir félagsmanna hafa breyst.
Í því samhengi eru faghópar sem mótast um tiltekin áhuga- eða starfssvið árangursríkari leið til að ná til félagsmanna, meðal annars í stafrænu umhverfi og á samfélagsmiðlum.
Deildir og faghópar mega ekki koma fram opinberlega í nafni VFÍ nema með samþykki stjórnar. Stofnun deildar þarf samþykki stjórnar.
Orðanefndir VFÍ sköpuðu íslensk fagorð fyrir nýja og gamla tækni.
Orðanefndir VFÍ
Innan Verkfræðingafélag Íslands var áratugum saman unnið mikilvægt brautryðjendastarf í íðorðasmíð en það er skipulögð vinna við gerð og skilgreiningu fagorða.
Orðanefndir Rafmagnsverkfræðingadeildar og Byggingarverkfræðingadeildar mótuðu íslensk fagorð fyrir flókin tæknileg hugtök á tímum þegar slíkur orðaforði var að mestu ekki til staðar.
Með sjálfboðavinnu félagsmanna VFÍ var lagður grunnur að því að hægt væri að læra, starfa og ræða verkfræði á íslensku. Starf orðanefndanna hafði varanleg áhrif á kennslu og þróun faglegs samtals í verkfræðigreinum á Íslandi.
