Beint í efni

Dagur verkfræðinnar 2026

Fjölbreytt og spennandi dagskrá. - Tryggið ykkur sæti.

Dagur verkfræðinnar 2025 mynd yfir salinn

Velkomin á Dag verkfræðinnar 2026

Dagur verkfræðinnar verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica föstudaginn 20. mars kl. 13:00–16:30.

Húsið opnar kl. 12:30 – heitt á könnunni.

Teningurinn, viðurkenning Verkfræðingafélags Íslands fyrir verkefni eða framkvæmd sem lokið var á árinu 2025, verður afhentur við hátíðlega athöfn. 

Dagur verkfræðinnar er stærsti viðburðurinn í starfi Verkfræðingafélags Íslands og hefur frá upphafi verið mjög vel sóttur. Þetta er einstakt tækifæri til að styrkja tengslanetið og hitta gamla og nýja kollega.

Verið velkomin. Ókeypis aðgangur.

Skráning er neðst á þessari síðu.

Dagskráin á Degi verkfræðinnar

13:00
Setning – Helgi Gunnarsson, formaður VFÍ

13:15
Ávarp – Sigurður M. Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ

13:25
Teningurinn afhentur. Viðurkenning Verkfræðingafélags Íslands fyrir verkefni eða framkvæmd sem lokið var á árinu 2025.

Kaffihlé og sal skipt upp

Þrjár samhliða málstofur kl. 14:00–16:30 í sölum A, B og H–I

Salur A: Íslenski orkugeirinn

14:00–14:20
Stækkun orkuvers í skugga eldsumbrota
Rafn Magnús Jónsson, yfirverkefnastjóri tæknisviðs HS Orku

14:20–14:40
Vatnsafl á Íslandi – áskoranir og tækifæri
Gunnar Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri vatnsafls hjá Landsvirkjun

14:40–15:00
Umriðlatengdar vinnslu- og álagseiningar – áskoranir fyrir flutningskerfið
Magni Þ. Pálsson, verkefnastjóri rannsókna hjá Landsneti

15:00–15:30
Kaffihlé

15:30–15:50
Þegar líkan mætir kerfi: PowerFactory í notkun
Ólafur Már Þrastarson, verkfræðingur hjá Landsneti

15:50–16:10
Iceland School of Energy í HR
Juliet Ann Newson, framkvæmdastjóri

16:10–16:30
Háhitalagnir – nýjar nálganir í hönnun og einangrun
Valdimar Hjaltason, framkvæmdastjóri Norvion

Salur B: Gervigreind og sköpunargáfa

14:00–14:20
Drukkið úr brunahana – fylgst með þróun gervigreindar
Sverrir Heiðar Davíðsson, stofnandi Javelin AI

14:20–14:40
Íslenskan í heimi gervigreindar
Róbert Fjölnir Birkisson, hugbúnaðarverkfræðingur hjá Miðeind

14:40–15:00
ADHD sem styrkleiki? Ofureinbeiting og margbreytileg hugsun
Margrét Snorradóttir, reikniverkfræðingur

15:00–15:30
Kaffihlé

15:30–15:50
Machine Learning for Markerless High-Speed Motion Capture
Jaldert Rombouts, CTO hjá Elva Golf

15:50–16:10
Nám í tæknifræði – breytingar og nýjar faggreinar
Ásgeir Ásgeirsson, deildarforseti Tæknifræðideildar HR

16:10–16:30
Verkfræðinemar HÍ – Team Spark kappakstursbíllinn
Tæknifræði- og verkfræðinemar HR – RU Racing kappakstursbíllinn

Salur H–I (2. hæð): Kraftar náttúru og tækni

14:00–14:20
Orkuframleiðsla á valdi vinds og djúps – frá olíupöllum til djúpsjávarvindmylla
Þorvarður Jóhannesson, rekstrarráðgjafi, Dynamic Insight

14:20–14:40
IDDP – Iceland Deep Drilling Project
Kristinn Ingason, fagstjóri jarðvarma hjá COWI

14:40–15:00
Eldingar – áhætta og varnir
Gunnar Sigvaldason, verkfræðingur hjá Lotu

15:00–15:30
Kaffihlé

15:30–15:50
Hagnýting skammtatölva
Sigurður Ingi Erlingsson, prófessor við Verkfræðideild HR

15:50–16:10
Þróun og helstu framkvæmdir hjá Faxaflóahöfnum
Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs Faxaflóahafna

16:10–16:30
Kolefnisspor íslenskra brúa – úttekt og markmið
Andri Gunnarsson, brúarverkfræðingur hjá EFLU

Skráning á viðburð

Þátttakandi