Verkfræðingafélagið býður félagsmönnum ásamt mökum og börnum í 600Klifur miðvikudaginn 30. september.
Boðið verður upp á klifur milli kl. 16:30-18:00 og í framhaldi verður boðið upp á pizzur frá Greifanum í salnum á efri hæð.
Leiðbeinandi tekur á móti hópnum, verður með stutta kynningu/kennslu og fer yfir öryggisatriði. Síðan verður frjálst klifur en leiðbeinandi áfram á staðnum og tryggir þá sem vilja prófa línuklifur.
Skráning er á viðburðinn og þarf hún að að hafa borist eigi síðar en kl. 12:00 þriðjudaginn 29. september.

