Á fundi Öldungadeildar VFÍ fimmtudaginn 5. mars mun Þór Jakobsson veðurfræðingur fjalla um siglingar á norðurslóðum. Loftslagsbreytingar og hörfun hafíss stuðla að aukinni skipaumferð um Norður-Íshaf í stað hefðbundinna siglingaleiða.
Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Húsið opnar kl. 15:30 með kaffi og bakkelsi og fyrirlestur byrjar kl. 16:00.
Allir félagsmenn VFÍ og makar eru velkomnir á fundi Öldungadeildar VFÍ.



