Beint í efni

Fundur Öldungadeildar VFÍ: Himingeimurinn og almyrkvi á sólu

Gestur fundarins verður Sævar Helgi Bragason, „Stjörnu-Sævar“ og mun hann fjalla um himingeiminn og sérstaklega almyrkva á sólu sem verður í ágúst á þessu ári.

Almyrkvi á sólu.

Almyrkvi á sólu er ein stórfenglegasta sýning náttúrunnar. Almyrkvinn 12. ágúst 2026 gengur yfir Norðurskautið, Grænland, Ísland, Portúgal og Spán. Í norðurhluta Norður Ameríku, Skandinavíu, Evrópu og vestur Afríku sést deildarmyrkvi. (Heimild: Sólmyrkvi2026.is).

Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Húsið opnar kl. 15:30 með kaffi og bakkelsi og fyrirlestur byrjar kl. 16:00.

Allir félagsmenn VFÍ og makar eru velkomnir á fundi Öldungadeildar VFÍ.

Mynd:Unsplash.