Á fundi Öldungadeildar VFÍ fimmtudaginn 22. október mun Halldór Björnsson fagstjóri veðurs og loftslags flytja erindi. Hann mun fræða fundagesti um loftslagsbreytingar og breytingar á hafstraumum sem orðið hafa undanfarin þrjátíu ár.
Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Húsið opnar kl. 15:30 með kaffi og bakkelsi og fyrirlestur byrjar kl. 16:00.
Allir félagsmenn VFÍ og makar eru velkomnir á fundi Öldungadeildar VFÍ.


