Beint í efni

From Risk to Resilience: Adapting Critical Infrastructure for a Changing Climate and an Uncertain Future

Hádegisfundur og vinnustofa í samstarfi við Sjálfbærnisetur Háskólans í Reykjavík.

Arnarnesvegur yfirlitsmynd af hringtorgi.

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á áhættu sem tengist mikilvægum innviðum og Ísland er þar engin undantekning. Vatnsaflsvirkjanir, jarðvarmavinnsla, raforkuflutningar og aðrir mikilvægir innviðir þurfa að geta tekist á við bæði hægfara breytingar og ófyrirséða atburði, svo sem öfgaveður, náttúruvá og mögulegar breytingar á hafstraumum.

Á fundinum verður fjallað um hvernig færa megi áhersluna frá hefðbundnu áhættumati yfir í aukinn viðnámsþrótt, aðlögun og ábyrga ákvarðanatöku til lengri tíma. Alþjóðlegri fræðilegri þekkingu verður fléttað saman við sjónarmið íslenskra fyrirtækja og sérfræðinga.

Prófessor Martin Drews frá Tækniháskóla Danmerkur (DTU) flytur aðalerindi fundarins. Einnig taka þátt:

  • Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, forstöðumaður loftslags- og sjálfbærnimála hjá Landsvirkjun.
  • Halldór Halldórsson, öryggisstjóri Landsnets.
  • Anna Hulda Ólafsdóttir, forstöðumaður skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands.

Að erindum loknum fara fram pallborðsumræður um hvernig Ísland geti færst frá vitund um loftslagsáhættu yfir í raunhæfar aðgerðir til að auka viðnámsþrótt innviða. Helgi Þór Ingason stýrir fundinum og pallborðsumræðum.

Fundurinn fer fram á ensku.

Hádegisfundurinn er skipulagður af Rannsóknarsetri HR um sjálfbæra þróun (SIF), með stuðningi Verkfræðingafélags Íslands. Hann er liður í sjálfbærnidegi Háskólans í Reykjavík.

Vinnustofa hjá VFÍ

Í framhaldi af hádegisfundinum standa Verkfræðingafélag Íslands og Rannsóknarsetur HR um sjálfbæra þróun (SIF) fyrir vinnustofunni Dynamic Adaptation Pathways Planning (DAPP) kl. 14:00–16:30 í húsnæði VFÍ að Engjateigi 9.

Prófessor Martin Drews leiðir vinnustofuna, þar sem þátttakendur kynnast DAPP-aðferðinni og vinna í þverfaglegum hópum með tvö íslensk viðfangsefni:

  • Viðnámsþrótt íslenska raforkukerfisins gagnvart loftslagsbreytingum og náttúruvá.
  • Langtímaskipulag Sundabrautar við óvissar framtíðaraðstæður.

Vinnustofan er aðeins ætluð boðsgestum og fjöldi þátttakenda er takmarkaður.

Nánari upplýsingar um hádegisfundinn á vef Háskólans í Reykjavík

Nánari upplýsingar um vinnustofuna á vef SIF