Haustferð Norðurlandsdeildar VFÍ verður laugardaginn 31. október.
Við munum hittast á planinu sunnan við íþróttahöllina á Akureyri kl. 11:30 og förum saman í rútu.
Byrjum á því að keyra á Þeistareyki þar sem boðið verður upp á samlokur og gos yfir kynningu. Að kynningu lokinni verður farið í skoðunarferð um stöðina og framkvæmdasvæði þeirra framkvæmda sem nú eru í gangi.
Þar næst verður keyrt áfram á Stéttina Húsavík þar sem við fáum kynningu á Þekkingarneti Þingeyinga og Hraðinu miðstöð nýsköpunar ásamt kynningu frá Bergþóri Bjarnasyni, sveitarstjóra Norðurþings, um verkefni á Bakka.
Ferðin endar með kvöldverði á Gamla Bauk.
Ferðin er eingöngu fyrir félagsfólk VFÍ.
Skráning í ferðina er á eftirfarandi slóð fyrir kl. 12 fimmtudaginn 29. október.
Sætaframboð er takmarkað við 40 manns svo endilega skráið ykkur sem fyrst.
Með kærri kveðju stjórn NVFÍ.



