Stjórn ÖVFÍ hefur skipulagt dagsferð fyrir félagsmenn og maka miðvikudaginn 9. september. Farið verður með rútu frá Verkfræðingahúsi kl. 10:00.
Keyrt verður sem leið liggur að Strandarkirkju og þaðan um Suðurstrandarveg til Þorlákshafnar. Uppbygging í bænum skoðuð. Síðan liggur leiðin til Eyrarbakka og byggðasafnið skoðað í fylgd safnstjóra, sem mun fræða hópinn um sögu staðarins.
Í hádeginu verður snæddur hádegisverður á Rauða húsinu Eyrarbakka. Að því loknu verður ekið til Selfoss og skáksafn Bobby Fischer skoðað.
Rifjuð verður upp örlagasaga Ölfusárbrúarinnar sem var fyrsta nútíma hengibrúin á Íslandi, byggð 1881. Ekið verður upp með Ölfusá og framkvæmdasvæði nýju brúarinnar skoðað undir leiðsögn fulltrúa frá ÞG verktökum.
Haldið heim með viðkomu í Reykjadal þar sem verður hressing í boði VFÍ.
Ráðgert að koma til baka í Verkfræðingahúsið kl. 19:00.
Ferðin kostar kr. 13.000.- pr. mann. Innifalið er rúta, hádegisverður (drykkir ekki innifaldir), nesti og aðfangur að söfnum.
Skráning er hafin. - Fyrstir koma, fyrstir fá!
Skráning fer fram með tölvupósti á netfangið: vilborg@verktaekni.is
Vinsamlega takið fram ef maki/gestur er með í för.

-2000x1333.jpg&w=3840&q=80)