0Ohm/Rafmagnsverkfræðideild VFÍ stendur fyrir heimsókn til Laki Power fimmtudaginn 5. nóvember.
Laki Power er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem hannar, framleiðir og selur eftirlitsbúnað og hugbúnaðarlausnir fyrir háspennuinnviði.
Heimsóknin er liður í starfi 0Ohm/Rafmagnsverkfræðideildar VFÍ við að efla fagleg tengsl og miðlun þekkingar meðal rafmagnsverkfræðinga og rafmagnstæknifræðinga.
Athugið að aðeins er pláss fyrir 25 þátttakendur og því er skráning nauðsynleg.

-2000x1333.jpg&w=3840&q=80)

