Norðurlandsdeild VFÍ
Samlokufundur hjá Drift.
Miðvikudaginn 25. febrúar kl. 12-13 verður samlokufundur haldinn hjá Drift EA (gamla Landsbankahúsinu).
Kolbeinn Óttarsson Proppé kynnir Grænafl sem vinnur að því að þróa og innleiða heildstæða lausn fyrir orkuskipti í minni skipum með því að breyta bátum sem þegar eru í notkun (e. retrofit). Olíuvélarnar eru fjarlægðar úr bátunum og í stað þeirra settur nýr búnaður, þannig að þeir verði ýmist 100% rafmagnsbátar eða blendingsbátar (e. hybrid) í stað þess að keyra eingöngu á olíu. Grænafl stuðlar þannig að því að Ísland geti staðið við skuldbindingar sínar varðandi loftslagsmál og kolefnishlutleysi og dregur um leið úr orkukostnaði bátseiganda. Um er að ræða alþjóðlegt samstarfsverkefni og að því koma s-kóreskar stofnanir og fyrirtæki, auk innlendra samstarfsaðila s.s. HS Orku, Slippsins og Verkfræðistofunnar Eflu.
Boðið verður upp á samlokur og drykki.


