Beint í efni

Kynning á nýjum vef 0Ω

Kynning á nýjum vef og fyrirlesturinn: Álið er málið.

0Ohm forsíða

Föstudaginn 30. október kl. 17:00 verður nýr vefur 0Ω (0Ohm) kynntur í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9.

Hver er tilgangurinn með vefnum, hvernig er hann notaður og hvaða möguleika býður hann upp á? Þessum spurningum og fleiri verður svarað á kynningunni.

Guðjón Teitur Sigurðarson frá DTE flytur jafnframt erindið Álið er málið.

Léttar veitingar verða í boði VFÍ.

Skoðaðu nýja vefinn og skráðu þig á viðburðinn.

Um 0Ω – góð orka, sterk tengsl og spennandi viðburðir

0Ω (0Ohm – ekki við nám) er vettvangur rafmagnsverkfræðinga og rafmagnstæknifræðinga innan VFÍ. Félagsskapurinn sækir innblástur í VIR, nemendafélag rafmagns- og tölvuverkfræðinema og leggur áherslu á að viðhalda öflugu faglegu og félagslegu tengslaneti eftir útskrift.

Vorið 2026 var ákveðið að sameina krafta þessa félagsskapar og Rafmagnsverkfræðingadeildar VFÍ (RVFÍ), sem var stofnuð árið 1941 og á sér langa og merka sögu, meðal annars vegna öflugs íðorðastarfs Orðanefndar VFÍ um áratuga skeið.