Tengslin sem bera okkur
Virði vináttu á vinnustað
Á Samlokufundi fimmtudaginn 12. nóvember verður sjónum beint að virði vináttu og mannlegra tengsla á vinnustaðnum. Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9 kl. 12-13 og verður honum streymt. Hlekkur verður settur hér inn þegar nær dregur.
Um fyrirlesturinn
Það eru ekki alltaf stóru hlutirnir sem ráða því hvernig okkur líður í vinnunni. Oft er það fólkið í kringum okkur – þau sem sjá okkur, hlæja með okkur, styðja þegar á reynir og gera daginn einfaldlega aðeins betri.
Í þessu létta og hlýja erindi skoðum við virði vináttu og mannlegra tengsla á þrjá mikilvæga þætti: Vellíðan, virkni og viðspyrnu.
Með rannsóknum, sögum, húmor og hagnýtum hugmyndum verður sjónum beint að því hvað einkennir góð tengsl, hvers vegna þau skipta okkur máli og hvernig hvert og eitt okkar getur stuðlað að betri samskiptum og ánægjulegri vinnudegi.
Markmiðið er að þátttakendur fái aukinn skilning á mikilvægi góðra tengsla og hagnýtar hugmyndir um hvernig hægt er að efla þau í daglegu starfi.
Og áminningin er einföld:
Við þurfum ekki að bíða eftir jólavinaleiknum til að vera góður samstarfsmaður.
Fyrirlesari: Guðrún Snorradóttir leiðtogamarkþjálfi.
Að venju fá þau sem mæta á staðinn létta hressingu.


