Austurlandsdeild Verkfræðingafélags Íslands (AVFÍ) stendur fyrir vísindaferð og kynningu á uppbyggingu Hamborgar í Fljótsdal.
Hamborg er nýr byggðarkjarni í Fljótsdal þar sem unnið er að spennandi uppbyggingu íbúðarhúsnæðis og innviða, meðal annars með áherslu á nýtingu íslensks timburs.
Vettvangsskoðun
Í ferðinni verður verkefnið skoðað á vettvangi, húsnæði sem er í byggingu og framkvæmdir kynntar.
Kvöldverður og kynning
Að ferð lokinni verður haldið á Gistihúsið á Egilsstöðum, þar sem boðið verður upp á kvöldverð og nánari kynningu á verkefninu, hönnun, framkvæmdum og framtíðaráformum.
Rútuferðir
Ef næg þátttaka næst verður boðið upp á rútuferð með eftirfarandi brottfarartímum:
- Kl. 16:00: Brottför frá Alcoa Fjarðaáli.
- Kl. 16:50: Brottför frá Egilsstöðum við Frú Nielsen.
Að öðrum kosti verður sameinað í einkabíla til að keyra inn í Fljótsdal.
Skráning
Skráning fer fram með tölvupósti á tilkynningar@verktaekni.is.
Skráningarfrestur er til mánudagsins 2. nóvember 2026.
-2000x1333.jpg&w=3840&q=80)


