Skoðaðu launaseðilinn þinn!
Það borgar sig að fylgjast með launaseðlinum í hverjum mánuði. Þar kemur fram hvort launin þín og allar greiðslur séu réttar – og að rétt sé staðið að frádrætti.
Athugaðu sérstaklega:
- Grunnlaun og samningsbundið álag.
- Yfirvinnu, orlof og aðra greiðsluþætti.
- Iðgjöld í lífeyrissjóð og stéttarfélag.
- Skatta og önnur gjöld.
Ef eitthvað virðist rangt eða óljóst er mikilvægt að spyrja launafulltrúa eða leita til Verkfræðingafélagsins – við erum hér til að aðstoða.
Vinnuveitandi ræður ekki í hvaða stéttarfélagi þú ert. Eingöngu VFÍ fer með kjarasamningsumboð fyrir verkfræðinga og tæknifræðinga.
Launin
Flestir fá greidda fasta upphæð fyrir mánaðarvinnu og starfshlutfallið kemur þá fram í prósentu.
Auk þess fær fólk greidda yfirvinnu en það er sú vinna sem er unnin utan dagvinnutíma.
Þessar tölur eru mánaðarlaunin fyrir skatt.
Ofan á þessa upphæð geta þó lagst aðrar greiðslur, eins og matarpeningar, dagpeningar eða akstursgjald en það fer allt eftir kjarasamningi og ráðingarsamningi hvers og eins.
Skattar og önnur gjöld
Af öllum launum þarf að greiða skatta og önnur gjöld.
Þar á meðal er útsvar og tekjuskattur. Útsvarið rennur til þess sveitarfélags sem launþeginn býr í.
Tekjuskatturinn rennur til íslenska ríkisins.
Saman heitir þetta á launseðlinum staðgreiðsla.
Persónuafsláttur er föst upphæð og dregst frá þeirri upphæð sem launþegi á að greiða í skatta.
Stéttarfélögin
Allir greiða í stéttarfélag og eru gjöldin mishá eftir félögum. Þannig er félagsgjaldið í Verkfræðingafélaginu lágt. Það er föst upphæð en ekki prósenta af launum eins og hjá öðrum félögum. Athugið að félagsgjaldið innifelur ekki aðild að sjóðum félagsins, eins og orlofssjóði og sjúkrasjóði.
Vinnuveitandi greiðir vissa prósentu af launum félagsmannsins í sjóði stéttarfélagsins og veitir iðgjaldið ákveðin réttindi sem ákveðin eru í reglugerðum sjóðanna. Sjúkrasjóður er mikilvægastur sjóðanna enda greiðir hann dagpeninga ef alvarleg veikindi eða slys ber að höndum.
Lífeyrissjóðir
Í upphafi árs 2026 sameinuðust lífeyrissjóðir verkfræðinga og tæknifræðinga.
Lífsverk lífeyrissjóður var stofnaður árið 1954 og var í upphafi eingöngu fyrir verkfræðinga. Tæknifræðingar áttu flestir aðild að Almenna lífeyrissjóðnum.
Landssamtök lífeyrissjóða halda úti öflugum upplýsingavef um lífeyrismál.