Eingöngu Verkfræðingafélag Íslands fer með kjarasamningsumboð fyrir verkfræðinga og tæknifræðinga – og mikilvægt að ungt fólk fái ekki villandi upplýsingar þegar það er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði.
Góð ráð í upphafi starfsferils
- Verið stolt af menntuninni og meðvituð um styrkleika ykkar.
- Spyrjið og lærið af samstarfsfólki. Ekki vera smeyk við að biðja um leiðsögn.
- Byggið upp tengslanet. Það nýtist faglega og persónulega.
- Kynnið ykkur réttindi og skyldur. Þekking á kjaramálum eykur öryggi.
- Hugsið til framtíðar. Fjárfestið í þekkingu og starfsþróun.
- Haldið í jafnvægið. Hlúið að heilsunni og gætið að jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Þegar fólk ræður sig í vinnu nýtur það ákveðinna kjara sem samið hefur verið um í kjarasamningum milli stéttarfélaga og atvinnurekenda. Í sumum tilfellum gilda landslög.
Það gerist ósjaldan að þegar ungt fólk fær í hendurnar sinn fyrsta launaseðil að það skilur hvorki upp né niður í honum. Það er ekki svo snúið að setja sig inn í málin, - og það margborgar sig.
Vertu með á nótunum. Kynntu þér kjarasamninginn og skoðaðu launaseðilinn.
Mikilvægur þáttur í starfsemi VFÍ er að veita aðstoð við gerð ráðningarsamninga. Þegar gerðir eru svokallaðir einstaklingsbundnir ráðningarsamningar er sérstaklega mikilvægt að vanda vel gerð samningsins.
Að gefnu tilefni er vakin athygli á því að samkvæmt jafnréttislögum er starfsmaður ekki bundinn af því ef sett er skilyrði í ráðningarsamning um að trúnaður skuli ríkja um laun hans.

